Árshátíð Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri

Árshátíð Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri verður haldin í hátíðarsal skólans á Stokkseyri  fimmtudaginn 10. apríl.

Hátíðin hefst kl. 13:30 með hátíðardagskrá á sviði og síðan kaffiveitingum að henni lokinni. 

Nemendur mæta samkv. stundaskrá  í skólann og fara heim að árshátíð lokinni. Þau þurfa því að hafa fínu fötin með sér í skólann að morgni.

 Eftirfarandi skipulag verður á árshátíðinni:

1., 3., 5. og 7. bekkur verða með atriði á sviði, ásamt skólakór og nemendum úr Tónlistaskóla Árnesinga.

10. bekkur sér um kaffisölu í Skruggudal en aðrir bekkir sjá um undirbúning árshátíðarinnar og aðstoða við framkvæmd.

Kaffi og kökur kr. 800,- fyrir fullorðna, 400,- fyrir skólanemendur og frítt fyrir yngri börn. Skólablaðið Mar verður til sölu á kr. 500,- .Blaðið var samið af nemendum í valgreininni Forlagið og styrkti Kvenfélag Eyrarbakka útgáfu þess.   Í blaðinu má m.a. finna  viðtöl, greinar,matarhorn, sturlaðar staðreyndir og fleirra.

 

Daginn eftir árshátíðina mæta nemendur í skólann samkv. stundaskrá. Dagurinn verður notaður til að taka til og föndra fyrir páskahátíðina. Þennan dag lýkur kennslu á Eyrarbakka kl. 12:30 og á Stokkseyri kl. 13:15 og halda þá nemendur heim í páskafrí.

Eftir páska mæta nemendur í skólann þriðjudaginn 22. apríl samkv. stundaskrá.

Þeir foreldrar sem vilja hafa börnin sín áfram á skólavistinni mánudag, þriðjudag og miðvikudag í páskavikunni þurfa að sækja um það í síðasta lagi föstudaginn 11. apríl.

Foreldrar og aðrir ættingjar velkomnir.