BES og Skógræktarfélag Eyrarbakka gera með sér samning

Í dag heimsóttu nemendur unglingastigs Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri Hallskot, hvar Skógræktarfélag Eyrarbakka hefur aðstöðu og umráðaland. Tilgangurinn var að kynnast svæðinu, taka örlítið til hendinni og að undirrita samstarfssamning. Samningurinn kveður á um að unglingastig vinni með félagin að minnsta kosti einu sinni á ári að útplöntun og aðstoð við umhirðu á skógræktarsvæðinu við Hallskot og einnig útplöntun á völdum svæðum í nágrenni Eyrarbakka og Stokkseyri. 

Markmið með samningnum er að efla náttúru- og umhverfisvitund nemenda Barnaskólans, koma upp skólalundi á skógræktarsvæði Skógræktarfélags Eyrarbakka, bæta skjólbeltum og gróðri í umhverfi Eyrarbakka og Stokkseyri og koma á samstarfshefðum milli skólans og skógræktarfélagsins.

Skólinn og skógræktarfélagið munu vinna saman tvisvar hvert skólaár að lágmarki. Að vori mun unglingastig BES að stoða við umhirðu og að hausti, á degi íslenskrar náttúru, munu öll aldursstig  skólans sinna útplöntun.

Á myndunum sjást þeir Magnús J. Magnússon skólastjóri og Daði Viktor Ingimundarson deildarstjóri undirrita samninginn fyrir hönd BES ásamt Siggeiri Ingólfssyni og Ingófi Hjálmarssyni frá Skógræktarélaginu.