Finnskur námsráðgjafi

Vikuna 15.- 19. október verður námsráðgjafanemi frá Finnlandi í heimsókn hjá  okkur. Hún heitir Mari Lyyra og kemur til með að fylgja Guðrúnu Thorsteinsson námsráðgjafa í hennar störfum og tekur eins mikinn  þátt í skólastarfinu og unnt er.  Þeir sem hafa áhuga á að ræða við hana geta haft samband við hana eða Guðrúnu Thosrseinsson og pantað tíma.