Fræðslufundur fyrir foreldra 7. – 10. bekkinga miðvikudaginn 17.10.

Mikilvægt!

 Fræðsla fyrir foreldra nemenda í unglingadeild  BES verður haldinn  miðvikudaginn 17. október kl. 18:30.

Fyrirlesturinn ber heitið „Fjárfestum í tíma með börnunum okkar“ og er það  Davíð Bergman Davíðsson meðferðarráðgjafi  fjallar um áhættuhegðun unglinga í kjölfar  fræðslu í 9. og 10. bekk í grunnskólum Árborgar dagana 24. – 28. september.  Þetta er nokkuð sem foreldrar mega ekki missa af!

 Fyrirlestur Davíðs verður haldinn í húsnæði skólans á Eyrarbakka. Hvetjum alla foreldra og forráðamenn að mæta á þennan öfluga fyrirlestur!