5.8.2010
SKÓLABYRJUN 2010 - 2011
Skólabyrjun verður með óhefðbundnum hætti í ár vegna flutninga í nýja skólabyggingu. Nemendum, forráðamönnum og gestum er boðið að skoða hana að lokinni stuttri setningarathöfn í hátíðarsal skólans á Stokkseyri þann 24. ágúst (sjá neðar). Nemendur mæti í skólann sem hér segir: - Nemendur 7. – 10. bekkjar mæta í skólann á Eyrarbakka mánudaginn 23. ágúst kl. 10:00 og fá afhentar stundaskrár og bækur. Kennsla hefst á Eyrarbakka daginn eftir, þriðjudag 24. ágúst skv. stundaskrá, eftir athöfn á Stokkseyri. - Nemendur 1. – 6. bekkjar mæta í skólann á Stokkseyri þriðjudaginn 24. ágúst kl. 8:20. Að lokinni setningarathöfn þar hefst kennsla skv. stundaskrá. Ferðir skólabíls vegna skólabyrjunar: Mánudag 23/8 fer frá skóla Stokkseyri kl. 9:45 og heim aftur frá Eyrarbakka um kl. 12:00 Þriðjudag 24/8 fer frá stoppistöðvum Eyrarbakka kl. 8:00 með 1.-10. bekkinga. Fer með 7.-10. bekkinga frá Stokkseyri að setningarathöfn lokinni


