Jól í skókassa í BES 2. nóvember

Foreldrafélag Barnaskólans á Eyrarbakka og Stokkseyri stendur fyrir „Jólum í skókassa“ í dag í skólanum á Stokkseyri kl. 17:30 – 19:30. Þar verða settar upp aðstæður til að útbúa gjafir fyrir „Jól í skókassa“. Kaffi og djús í bóði foreldrafélags. Foreldrafélag BES hvetur alla til að koma og taka þátt. Hafið með ykkur tóma skókassa, lím, skæri og sitt lítið af hverju sem hentar til að setja í kassanna (nánari upplýsingar um allt sem má og á helst að fara í kassanna, er að finna á heimasiðu verkefnisins).
Foreldrafélagið hefur þegar safnað skókössum og leggur til jólapappír. Til eru einnig tannburstar sem eiga að fara í kassanna. Upplýsingar um verkefnið eru að finna á heimasiðu:

https://www.kfum.is/skokassar/