Jólaskemmtun 16. desember

Kæru foreldrar/forráðamenn

Skólastarfi fyrir jól lýkur að venju með jólaskemmtun sem haldin verður á  Stokkseyri 16. desember. Nemendur mæta til skóla klukkan 09.00. Dagurinn hefst á hátíðarstund í stofum með umsjónarkennara.

 

 

Í skólastofunni skiptast börnin á jólagjöfum (lítilli vinargjöf)  og þurfa því allir að leggja til einn lítinn jólapakka. Jólagjöfin má ekki kosta meira en kr. 500,-.

 

Eftir stofujól verður nemendum á Eyrarbakka ekið á Stokkseyri  og verða þeir komnir þangað kl. 10.00  Foreldrar velkomnir og hvattir til að mæta!

Dagskrá jólaskemmtunar:
1.   Skólastjóri setur jólaskemmtunina
2.   Jólahugvekja.
3.   Helgileikur 4. bekkur flytur
4.   Dansað kringum jólatréð
5.   Hópsöngur  Heims um ból

Áætluð heimkoma eftir jólaskemmtun er kl. 11:00
Skólahald hefst að nýju  þriðjudaginn 3. janúar 2012 samkvæmt
stundaskrá.
Skólavistin  opnar  strax að lokinni jólaskemmtun. Skólavistin verður opin eftirtalda daga:
19. – 23. des frá 08.00 – 17.00
27. – 30. des frá 08.00 – 17.00

Lokað verður mánudaginn 2. janúar vegna starfsdags.
Þeir sem að ætla að nýta sér skólavistina þessa daga hafi samband og skrái hvaða daga fólk ætlar að nýta sér og hve lengi á hverjum degi.

Með jólakveðju ,
starfsfólk Barnaskólans