Námskeið um stafræna borgaravitund og ábyrga netnotkun

Heimili og skóli og SAFT vekja athygli á námskeiðinu: Netið okkar

Námskeiðið Netið okkar er ókeypis og opið öllum en einkum ætlað skólafólki, foreldrum og öðrum sem koma að uppeldi og menntun ungmenna. Það er sjálfstætt framhald námskeiðsins Netið mitt sem var í boði á vormisseri 2017 en þá var fjallað um borgaravitund og lýðræði, sjálfsmynd og netorðspor, réttindi og ábyrgð, andlega og líkamlega heilsu og vellíðan. Á námskeiðinu Netið okkar verður fjallað um siðareglur og netvenjur, samskipti og sambönd, netöryggi og læsi og samfélagsþátttöku.

Nánari upplýsingar hér: https://www.smore.com/h2aq8