Skólasetning 2015

Grunnskólar Sveitarfélagsins Árborgar verða settir mánudaginn 24. ágúst 2015. Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri setur sitt starfsár sem hér segir:

Kl. 09.00    Skólasetning 1.–6. bekkjar, f. 2004−2009,  á Stokkseyri.

Kl. 11.00    Skólasetning 7.–10. bekkjar, f. 2000‒2003, á Eyrarbakka.

Skólabíllinn fer frá skólanum á Eyrarbakka kl. 8.45 og frá skólanum á Stokkseyri kl. 10.45 fyrir þá sem þurfa.

Innkaupalista má finna á heimasíðu undir bekkjarflipum. Skóladagatal skólaársins er að finna undir upplýsingaflipa.

Skólastjórnendur