ÚTIVISTARDAGURINN 26. SEPTEMBER!

Miðvikudaginn 26. september verður útivistardagurinn á BES. Hann verður að þessu sinni á Stokkseyri.  Hann hefst 08.15 á Eyrarbakka og Stokkseyri þar sem nemendur  mæta í sínar heimastofur og vinna þar í Olweusarverkefni til 9:25. Nemendur á Eyrarbakka og Stokkseyri fá stuttan fyrirlestur um góð samskipti í heimi íþróttanna.  Um kl. 10.00 fara 7. – 10. bekkur á Stokkseyri og hitta þar 1 – 6. bekkinga og síðan verða nemendur við leik á 10 mismunandi stöðvum í kringum skólann á Stokkseyri. Starfsdeginum lýkur kl. 13.15 og fara þá allir nemendur heim.

Viljum við benda á að nemendur klæði sig vel eftir veðri.

Starfsmenn BES