Vettvangsferð unglingastigs á Selfoss

Miðvikudaginn 28. október fór unglingastig BES í góða ferð á Selfoss. Dagurinn hófst með því að nemendur þáðu gestaboð Sunnulækjarskóla og sóttu leiksýninguna „Halldór á hundavaði“ í flutningi Hunda í óskilum. Þar gerðu „Hundarnir“ nokkrum verkum Halldórs Laxness skil með þeirra landsþekkta lagi. Að sýningu lokinni heimsóttu BES-arar Gunnar í félagsmiðstöðinni Zelsíus og Heiðrúnu í bókasafni Árborgar á Selfossi í stutta kynningu á þeirra starfsstöðvum. Vel lukkuð ferð þar sem nemendur BES voru til fyrirmyndar í einu og öllu.